Skip to main content

Hér með er tilkynnt að hrognkelsisveiðar ISF (Iceland Sustainable Fishery) hafi fengið tilkynningu um afturköllun frá MSC-vottun, sem tekur gildi eftir mánudaginn 19. maí 2025. Vottunarstofan NSF Global Trust tilkynnti afturköllunina eftir fjórðu árlegu úttektina á veiðunum, þar sem vottunarstofan komst að þeirri niðurstöðu að, þrátt fyrir framfarir til að draga úr meðafla sjávarfugla, hafi ekki tekist að uppfylla  skilyrði er varða áhrif á verndun tegunda sem eru í útrýmingarhættu, er ógnað eða njóta verndar (á ensku: ETP – endangered, threatened and protected species).

ISF hefur 90 daga til að skila aðgerðaráætlun til vottunarstofunnar þar sem brugðist er við ástæðum afturköllunarinnar. Slík áætlun hefur þegar verið lögð fram til vottunarstofunnar.   Ef samþykkt, verður afturköllunin engu að síður áfram í gildi þar til búið er að leysa undirliggjandi vanda að fullu. Takist aftur á móti að loka skilyrðunum þá er vottunin endurheimt og hægt að hefja endurvottunarferli fyrir nýtt skírteini en núverandi skírteini rennur út þann 16. Nóvember 2025.  Ef matsaðili metur aðgerðaráætlunina ófullnægjandi, mun vottunarstofan draga til baka fiskveiðivottun MSC.

Í kjölfar brottvísunarinnar gaf framkvæmdarstjóri ISF Kristinn Hjálmarsson eftirfarandi yfirlýsingu:

„Við erum vonsvikin yfir ákvörðun vottunarstofunnar NSF um að afturkalla MSC-vottun á grásleppuveiðum. Í íslenskum fiskveiðum er lagður metnaður í að stunda sjálfbærar veiðar.

Við teljum að þessi ákvörðun endurspegli ekki þá viðleitni. Við erum áfram skuldbundin sjálfbærni og munum halda áfram að vinna eftir ströngustu umhverfiskröfum.“