Fiskveiðar á íslenskum skötusel (Lophius Piscatorius) hlutu aftur MSC vottun samkvæmt fiskveiðistaðli MSC þann 24. apríl 2026. Þetta eru einu vottuðu skötuselsveiðarnar í prógrammi MSC, fiskveiðarnar sýna þannig ekki aðeins fram á að þær uppfylla stranga staðla MSC um sjálfbærar fiskveiðar, heldur geta líka fagnað því að vera þær einu í heiminum sem eru með MSC vottun.
Þessar fiskveiðar eiga sér sögu hjá MSC. Þær voru fyrst vottaðar árið 2018, og voru með vottun um tíma en vegna nokkurra skilyrða sem var ekki lokað innan tímaramma vottunarinnar, rann því miður skírteinið út árið 2024. Endurvottunin er því vel þegin þróun, sem sýnir skuldbindingu fiskveiðanna hvað varðar sjálfbærni og styður mikilvæga markaði þar sem þess er krafist að ákveðnar tegundir uppfylli stranga innkaupastefnu.
Skötuselur í hafinu við Ísland (ICES undirsvæði 5.a) er aðallega veiddur á 50-250 metra dýpi. Fiskveiðarnar notast við ólík veiðafæri, en almennt er veitt mest með botnvörpum, humarvörpu, og skötuselsnetum. Veiðarnar náðu hámarki árið 2009 og hafa síðan dalað, en eru núna aftur stöðugar.
Íslensku fiskveiðarnar fara fram í vel þróuðu fiskveiðistjórnunarkerfi, sem er byggt á nákvæmri gagnasöfnum og árlegu stofnsmati. Þegar endurvottunin fór fram, tók matið eftir þáttum sem höfðu batnað eins og meiri varúð með aflareglu, sterkara stjórunarkerfi hvað varðar tegundir sem eru ekki hluti af veiðum, og sterkara eftirlit og áhættuminnkum hvað varðar tegundir sem eru í útrýmingarhættu, stafar ógn af fiskveiðum eða eru verndaðar (enska – endangered, threatened and protected species, ETP).
Icelandic Sustainable Fisheries (ISF) aðstoðaði við endurvottunarferlið á fiskveiðunum. ISF var stofnað 2012 og leiðir saman fiskveiðigeirann og önnur viðeigandi fyrirtæki á Íslandi með það lykilmarkmið að styðja vottaðar fiskveiðar á Íslandi og veita aðgang að mörkuðum þar sem er krafist sjálfbært vottaðs sjávarfangs. Kristinn Hjálmarsson, forstöðumaður ISF, sagði: „Það er sterkt merki um árangur að íslenskar skötuselsveiðar séu í dag þær einu í heiminum með MSC vottun. Þótt skötuselur sé ein af minni kvótategundum hérlendis leggjum við ríka áherslu á að fá viðurkenningu fyrir ábyrga nýtingu. Sjálfbærni snýst nefnilega ekki um einstakar tegundir heldur heildarhugsun – ábyrga stjórnun fiskveiða og það öfluga samstarf sem hefur byggst upp í íslenskum sjávarútvegi.“
Erin Priddle, svæðisstjóri yfir Norður Evrópu hjá MSC, tekur fréttunum vel um endurkomu íslenska skötuselsins í MSC prógrammið, Hún segir: “MSC er ánægt að sjá endurvottun á íslenska skötuselnum í MSC prógramminu. Fiskveiðarnar eru einstakar að því leyti að þetta eru einu vottuðu skötuselsfiskveiðarnar innan MSC. Þetta er djúphafstegund og fiskveiðimennirnir vanda sig mjög þegar veiðar fara fram. Forysta ISF í að drífa áfram og setja í forgang sjálfbærni er til fyrirmyndar og við erum mjög stolt að hafa þau – og þessar fiskveiðar - sem langvarandi og góðan samstarfsaðila með MSC.
Frekari upplýsingar: