MSC framlengir ráðgjöf á tillögum á breytingum á reikjanleikastaðlinum (e. chain of custody standard).
Hagsmunaaðilar hafa núna þar til laugardaginn 13. júní 2026 til að fara yfir tillögur að breytingum á MSC rekjanleikastaðlinum og veita sitt álit gegnum netkönnun.
Rekjanleikavottunin gerir fyrirtækjum og neytendum kleyft að vera örugg um að vörur seldar með MSC umhverfismerkinu eigi uppruna sinn í MSC vottuðum fiskveiðum. Rekjanleikavottunin veitir einnig fullvissu um að vörur með Aquaculture Stewardship Council (ASC) umhverfismerkinu komi úr ASC vottuðu fiskeldi.
Til að hljóta vottun þarf hvert fyrirtæki í rekjanleikakeðjunni að sýna sjálfstæðum vottunaraðilum fram á að vörur úr vottuðum fiskveiðum eða fiskeldi séu auðþekkjanlegar, aðskildar frá óvottuðum vörum, og sé hægt að rekja hjá hvaða vottuðu fyrirtækjum vörurnar voru keyptar.
MSC er að endurskoða rekjanleikastaðalinn til að tryggja að hann endurspegli bestu starfsvenjur (e. best practice), sé viðeigandi fyrir sjávarútveginn og hægt sé að beita honum á árangursríkan og skilvirkan máta.
"Það hafa verið talsverðar breytingar á MSC prógramminu og í sjávarútveginum síðan staðallinn var seinast endurskoðaður árið 2019” segir Luzy Frazer, MSC Head of supply chain standard operations. “Þessar breytingar veita tækifæri til að byggja ofan á og bæta rekjanleikavottunina.”
Drög að endurskoðuðum staðli og tengdum kröfum fyrir rekjanleikavottun hafa verið þróu'. Þessar fyrirhuguðu breytingar innihalda skýringar á kröfum og ferlum til að tryggja að endurmat sé fyrirsjánlegra, og til að auka notkunargildi fyrir vottunaraðila og skírteinishafa. Þetta þýðir meðal annars að inniheldur meðal annars að fjarlægt er óþarflega flókið og ósamræmt orðalag og allar þrjár útgáfurnar af staðlinum (staðlaður, fyrirtæki með margar starfsstöðvar og fyrirtæki sem selja beint til neytenda) (e. default, group and consumer-facing organisation) í eitt endurskipulagt skjal.
Tillögur hafa verið þróaðar um að tryggja rekanleika og fullvissu, á meðan skírteinihafar eru aðstoðaðir við að sýna fram á fylgni við staðla sem eru í stöðugri þróun. Þetta krefst þess meðal annars að skírteinishafar láti reglulega fara fram rekjanleika æfingu innanhús (e. internal traceback exercise) og geti sýnt vottendum fram á hæfni þeirra til að hafa aðgang að skilgreindum lista að stöðluðum rekjanleikagögnum.
Ábendingar úr þessari könnun munu veita lykil innsýn inní hvort að tillögur að breytingum séu raunsæjar og geti leitt til ætlaðrar niðurstöðu af endurskoðuninni á rekjanleikastaðlinum.
Könnunin mun vera opin þar til kl. 23:59 laugardaginn 13 júní 2026 og allir hagsmunaaðilum með áhuga á rekjanleikastaðlinum eru hvattir til að far yfir tillögurnar og deila áliti sínu.
Finndu út meira um samráðið og taktu þátt.