Skip to main content

Fyrirtæki í virðiskeðjunni

Eftirspurn eftir rekjanlegum fiskafurðum úr sjálfbærnivottuðum veiðum eykst stöðugt um allan heim. Sala MSC-vottaðs sjávarfangs styður við fiskveiðisamfélög sem stunda sjálfbærar veiðar og kaupendur geta treyst því að varan mæti sjálfbærnikröfum þeirra.

MSC-vottunin er viðurkenndasta vottunar- og umhverfismerkingaráætlun heims fyrir sjálfbært vottaðar veiðar á villtu sjávarafangi. Með því að taka þátt í þessari áætlun og nota bláa MSC-merkið sýna fyrirtæki að sjávarafurðir þeirra eiga uppruna sinn í sjálfbærum veiðum.

Trygging fyrir sjálfbærnivottuðum sjávarafurðum

Öll fyrirtæki sem kaupa MSC-vottaðar sjávarafurðir og selja þær sem vottaðar, fara í gegnum úttekt hjá óháðum þriðja aðila sem vottar samkvæmt MSC-rekjanleikastaðlinum. Staðallinn tryggir óslitna keðju þar sem vottaðar sjávarafurðir eru auðþekkjanlegar, aðgreindar frá öðrum vörum og rekjanlegar. 

DNA-greiningar 

MSC vinnur með óháðri rannsóknarstofu að því að gera handahófskenndar DNA-prófanir á MSC-vottuðum sjávarafurðum. DNA greiningar hafa sýnt að hlutfall ranglega merktra MSC-vara er innan við 1%.

Gildi vottunar

MSC vottun hjálpar fyrirtækjum að mæta aukinni eftirspurn eftir vörum sem koma úr veiðum sem hafa verið vottaðar fyrir sjálfbærni, bætir orðspor og opnar á ný viðskiptatækifæri. 
Gildi vottunar
MSC rekjanleikastaðallinn

MSC rekjanleikastaðallinn

Rekjanleikastaðallinn tryggir að allar vörur sem eru seldar með bláa umhverfismerkinu komi úr veiðum sem hafa verið vottaðar fyrir sjálfbærni.

Finnið birgja

Hægt er að finna birgja um allan heim sem hafa fengið rekjanleikavottun MSC

Eftir vottun

Endurskoðun rekjanleikavottunar

Á þriggja til fimm ára fresti eru staðlarnir endurskoðaðir. Þetta gerir MSC kleift að mæta ábendingum frá hagaðilum, breytingum á markaði og framþróun og nýrri tækni í aðfangakeðjunni. 

Nýjasta endurskoðun staðlanna var kynnt til sögunnar í september 2023.

Endurskoðun rekjanleikavottunar
Vottaðar veiðar

Vottaðar veiðar

Hér er hægt að finna allar veiðar sem hafa verið vottaðar af MSC og upplýsingar um stöðu þeirra.