Skip to main content

Fyrir hvað stendur bláa umhverfismerkið?

Þegar þú sérð bláa MSC merkið á sjávarafurð, þýðir það að þú ert að velja villt veiddan fisk, sem er veiddur með veiðiaðferðum, sem hafa verið sjálfstætt metnar sem svo að uppfylli kröfur MSC um umhverfislega sjálfbærni.

 

Þessar kröfur einbeita sér að því að takmarka þau áhrif sem fiskveiðar geta haft á fiskstofna og umhverfi hafsins.

Í stuttu máli, þá er þetta einföld leið til að velja góðan valkost fyrir hafið þegar þú kaupir þér sjávarafurðir.

 

Hvað þýðir þetta í reynd

Að velja sjávarafurðir með bláa msc merkinu þýðir að fiskveiðarnar hafa verið metnar samkvæmt þremur meginreglum.

Meginregla 1: Sjálfbærir fiskistofnar

 

Fiskveiðum verður að vera stýrt þannig að fiskstofnar haldist heilbrigðir og virkir til langs tíma litið. Sjálfstæðir vottunaraðilar athuga hvort  stærð fiskistofnis sé nógu mikil til að viðhalda stöðugri æxlun, hvort núverandi veiði sé sjálfbær, og hvort sé til staðar öflug stefna til að uppfylla þessi markmið Þegar stofninn hefur verið tæmdur, verða að vera skýr sönnunargögn um að uppbyggingaráætlun sé til staðar og virki.

 

Staðallinn inniheldur ákveðin varúðarákvæði fyrir sumar tegundir sem mynda grunnin fyrir fæðuvefi, og krefst þess að nægur fjöldi sé til staðar til að halda við umhverfislegu hlutverki þeirra sem fæða fyrir stærri rándýr.

 

 

Meginregla 2: Draga úr umhverfisáhrifum

Vernda lífríki hafsins

Fiskveiðar mega ekki valda alvarlegum eða óafturkræfum skaða á vistkerfi hafsins. Þetta inniheldur: 

 

 

Meðafla og tegundir sem eru ekki í markhóp veiða

Fiskveiðar verða að sýna fram á að óvart tilfallandi afli – tegundir sem er náð óviljandi við fiskveiðar, takmarki ekki tegundir sem voru ekki takmark fiskveiðanna. Þetta þýðir meðal annars að hafa árangursríkar aðgerðir í huga til að takmarka meðafla sem ekki á að veiðasr með og koma í veg fyrir fækkun í stofnum

 

Tegundir sem eru í hættu, tegundir sem njóta verndar, og tegundir sem eru viðvæmar

 

Fiskveiðar verða að meta áhrif sín á

  • Tegnudir sem eru í hættu eða verndaðar
  • Spendýr, fugla, froskdýr og skriðdýr

Fyrir þessar tegundir verða fiskveiðar að sýna fram á að fiskveiði þeirra hindri ekki bata eða markmið nátturuverndar, og að hagnýtar aðgerðir séu til staðar til að forðast samskipti við þessar tegundir þar sem það er hægt, og takmarka skaða þegar samskipti eiga sér stað.

 

Víðtækara vistkerfið

Fiskveiðarnar mega ekki valda alvarlegum eða óafturkræfanlegum skaða á víðtæku vistkerfi – þar með talið fæðuvef og lykilatriðum í vistkerfinu. Fiskveiðar verða að vera með ráðstafnir tilbúnar sem koma í veg fyrir að fiskveiðafæri týnists, séu skilin eftir eða hent út sjó, þar sem glötuð veiðifæri halda áfram að fanga og drepa sjávarlíf, að eilífu.

 

Meginregla 3: Skilvirk veiðistjórnun

Vottaðar fiskveiðar verða að vinna innan stjórnunarkerfis sem er hæft um að skila af sér sjálfbærum niðurstöðum til lengri tíma. Sjálfstæðir matsaðilar skoða 3 megin atriði:

 

Lagalegur og stofnanalegur rammi.

Fiskveiðarnar verða að fylgja öllum viðeigandi staðbundnum lögum, þjóðarlögum og alþjóðalögum. Fyrir stofna sem fara yfir alþjóðleg landamæri eða eru veiddir á alþjóðlegu hafsvæði, er krafist skilvirks samstarfs milli viðeigandi stjórnvalda.

 

Stjórnunarstefna

Það verður að vera skýr stjórnunarstefna með skilgreinanlegum markmiðum, ákvarðanatökuferli og hagnýtum verkfærum – eins og aflamarki, árstímabundum lokunum og takmörkunum á notkun veiðarfæra – hannað til að halda fiskveiðum sjálfbærum og vernda vistkerfi sjávar.

 

Eftirlit og mat

Fiskveiðar verða að vera með kerfi til staðar til að fylgjast með stöðu fiskistofna, fiskveiðum og áhrifum á umhverfið. Stjórnunaraðgerðir verða að vera endurskoðaðar reglulega og uppfærðar í samræmi við ný vísindaleg sönnunargögn, eða breyttar aðstæður innan fiskveiðasvæðis.

 

Öll tæknileg skjöl um MSC fiskveiðistaðalinn eru gefin út á ensku á síðunni með skjöl fyrir fiskveiðar, og MSC staðlinum í heild sinni (útgáfa 3.1) má hlaða niðiur hér. Þetta skjal innilhedur tæknilegar kröfur notaðar af sérhæfðum matsaðilum til að meta fiskveiðar.

 

 

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Þú getur verið fullviss um að val þitt á sjávarafurðum styður heilbrigðara haf og að það muni vera fiskur í hafinu fyrir komandi kynslóðir.

 

Hvað eigum við við þegar við tölum um fiskveiðar

Þegar við tölum um fiskveiðar, erum við ekki að tala um einstaka bát eða fyrirtæki. Við notum skilgreiningu fyrir fiskveiðar sem var þróuð af Matvæla- og Landbúnaðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna.

Sú skilgreining nær til:

  • Ákveðinna tegunda eða hóps af tegundum
  • Veiddar á ákveðnu svæði
  • Ákveðin veiðiaðferð er notuð við veiðar

Fiskveiðar eru ekki það sama og fiskveiðifyrirtæki. Fiskveiðifyrirtæki geta stýrt nokkrum fiskveiðum, sum veiða og selja MSC vottaðar sjávarafuðrir og sum ekki.

Allar fiskveiðar í heiminum geta sótt um að vera metnar samkvæmt MSC fiskveiðistaðlinum á jafnréttisgrundvelli, burtséð frá stærð eða upprunalandi

Hinsvegar falla sumar fiskveiðar utan umfangs MSC prógrammsins. Þetta inniheldur veiðar sem eru eingöngu fiskeldi – þar sem MSC programmið snýst um villt veiddar tegundir.

Fiskveiðar sem miða á spendýr, fugla, skeldýr eða skriðdýr og fiskveiðar sem innihalda notkun á sprengjun eða eitri eru undanskildar.

Allar fiskveiðar sem hafa verið dæmdar vegna nauðungarvinnu eða brota á barnaþrælkun eða fyrir að skera uggan af hákörlum eru undanskildar.
Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

MSC merkið hjálpar þér að þekkja fisk sem hefur verið veiddur með því að nota MSC vottaðar fiskveiðaðferðir.

Hver athugar hvort staðlarnir séu uppfylltir

MSC vottar ekki fiskveiðarnar sjálfar

MSC setur kröfurnar fyrir mat – settar fram í MSC fiskveiðistaðlinum. En fiskveiðarnar eru metnar af sjálfstæðum matsaðilum og ákvarðanir um skírteini eru endurskoðaðar af sjálfstæðum sérfræðingum.


  • Fiskveiðar eru metnar af óháðum vottunaraðilum sem callast  á ensku Conformity Assessment Bodies (CABs). Þessir matsaðilar eru vottaðir samkvæmt alþjóðlega þekktum stöðlum, nánar tiltekið ISO 17065, alþjóðlega viðmiðinu fyrir matsaðila sem votta vörur, ferla og þjónustu, og ISO 19011 sem stýrir hvernig mat fer fram. Þetta þýðir að matsaðilarnir sjálfir eru sjálfstætt metnir uppá bæði hæfni og hlutleysi. MSC sér ekki sjálft um þessar úttektir og hefur engan fjárhagslegan ávinning a útkomu úr neinun könnunum.
  • Yfir meginreglunar þrjár, eru 25 ákveðin árangursvísar sem fiskveiðunum eru gefin stig fyrir. Stig uppá 60 er lámgmarks þröskuldurinn sem þar að uppfylla, 80 sýnir bestu starfsvenjur á heimsvisu og 100 sýnir fullkomnum (e. state of the art). Til að fá og viðhalda MSC skírteininu, verða fiskiveiðar að skora að minnsta kosti 60 á öllum árangursvísum og fá að meðaltali 80 í einkunn yfir alla árangursvísana.
  • Þegar fiskveiðar skora milli 60 og 80 á einhverjum árangursvísi, verða þær að gangast við nákvæmum, tímasettum úrbætum sem eru þekkt sem “skilyrði fyrir vottun” – og sýna fram a mælanlegan árangur innan ákveðina tímaramma. Ef fiskveiðarnar uppfylla ekki þessi skilyrði, er hægt að draga til baka skírteini þess eða afturkalla.
  • Heildar matsgerðinar fyrir allar fiskveiðar eru birtar á netinu og er opnar fyrir opinberar umsagnir yfir matstímann.
Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Merkið er ekki byggt á loforðum fyrirtækisins eða orðum MSC – það er byggt á sjálfstæðum athugunum.

Eru vottanirnar varanlegar?

Nei, þegar vottun hefur verið náð þurfa fiskveiðar að halda áfram að vera vottaðar og skírteini þeirra geta verið afturkölluð eða vísað frá ef þau uppfylla ekki MSC staðalinn:

  • Fiskveiðar metnar á hverju áru
  • Fiskveiðar undirgangast heildstætt endurmat á 5 ára fresti.

Niðurstöðurnar úr þessum athugunum eru birtar á netinu og eru opnar fyrir alla til að skoða.


Eru vottanirnar varanlegar?

 

Nei, þegar vottun hefur veroð náð þurfa fiskveiðar að halda áfram að vera vottaðar og skírteini þeirra geta verið afturkölluð eða vísað frá ef þau uppfylla ekki MSC staðalinn:

  • Fiskveiðar metnar á hverju áru
  • Fiskveiðar undirgangast heildstætt endurmat á 5 ára fresti.

Niðurstöðurnar úr þessum athugunum eru birtar á netinu og eru opnar fyrir alla til að skoða.


  • Mat samkvæmt MSC fiskveiðistaðlinum getur tekið 18 mánuði að ljúka. Vottaðar fiskveiðar eru metnar af óháðum matsaðilum á hverju ári , og fiskveiðiaðilar gætu lent í að skírteini þeirra er afturkallað ef fiskveiðarnar standast ekki matið. Eftir 5 ár eru fiskveiðar metnar að fullu aftur. Allir árangursvísar sem skora milli 60-79 munu fá skilyrði til að krefja fiskveiðarnar um að bæta frammistöðu sýna á leyfistíma skírteinisins.
  • MSC prógrammið inniheldur skýrt ferli til að takast á við þegar reglum er ekki fylgt (e. non-compliance). Ef fiskveiðar uppfylla ekki MSC staðalinn er hægt að frávísa eða afturkalla skírteinið. Frávísanir og afturkallanir eru birtar opinberlega á MSC heimasíðunni. Vörur úr fiskveiðum geta ekki verið seldar með bláa merkinu, þangað til sýnt hefur verið frá á að fiskveiðarnar uppfylli aftur staðalinn. Á sama máta, geta fyrirtæki í birgðarkeðjunni sem uppfylla ekki staðalinn lent í að þeirra skírteini sé frávísað eða það afturkallað.
Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Bláa MSC merkið er ekki endanlegt eða sjálfkrafa – það verður að öðlast það og halda því við.

Hvernig er vottaður, sjálfbærar sjávarafurðir fluttar gegnum birgðarkeðjuna?

Vörur sem eru seldar með bláa MSC merkinu verður að halda aðskildum í framleiðsluferlinu og kom í veg fyrir blöndun við óvottaðar sjávarafurðir. Það verður líka að rekja þær og skrásetja gegnum birgðarkeðjuna, frá fiskveiðunum til hillunnar í versluninni eða á borð fiskveiðisalans..

Fyrirtæki sem meðhöndla MSC vottaðar sjávarafurðir eru líka metin sjalfstætt, yfirleitt á hverju ári. Þau verða að uppfylla kröfunar settar fram í MSC rekjanleikastaðlinum – þekktur sem MSC rekjanleikastaðallinn. Ekki öll sjávarafurðaumhverfismerki hafa þennan rekjanleika eða fullvissu.


Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Ef þu sérð bláa MSC merkið á vöru, er hægt að rekja hana aftur til vottaðra umhverfisvænna sjálfbærra fiskveiða.

Hvað MSC merkið nær yfir og hvað ekki

Hvað MSC merkið nær yfir og hvað ekki

MSC umhverfismerkið enbeitr sér að umverfisáhrifum fiskveiðumar, t.a.m. að halda við afkastamiklum fiskistofnum, heilbrigðum vistkerfum og góðri fiskveiðistjórnun. Það vottar ekki samfélagsleg eða efnahagsleg skilyrði, og nær ekki yfir hluti eins og pakkningar, eða kolefnisspor lokavörunnar.

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Merkið er fullvissa fyrir þig um að sjávarafurðinarþínar voru veiddar á máta sem minnkar umhverfisáhrifin á hafið

Þróað á gegnsæjan hátt, með aðstoð frá sérfræðingum

 

MSC hefur unnið með fiskveiðum í næstum 30 ár og staðallinn er byggður á siðareglum Sameinuðu Þjóðanna um ábyrgðarfullar fiskveiðar. Staðallin hefur þróast gegnum gegnsætt ferli sem innheldur samráð við fiskveiðiaðila, vísindamenn, umhverfisgóðgerðarsamtök og sjávariðnaðinn.

 

MSC fiskveiðistaðallinn og MSC rekjanleikastaðallin neru endurskoðaðir og uppfærðir gegnum skipulag ferli sem inniheldur samráð við breiðan hóp af sérfræðingum. Þessu ferli er stýrt af Staðlasetningarferlinu sem er hægt að sjá á vefsíðu okkar. Við yfirförum staðlana okkar eglulega, núverandi útgafa (.3.1) var gefin út 2024
Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hvað þýðir þetta fyrir þig

 MSC prógrammið setur þekkta og stranga staðla fyrir sjálfbærar fiskveiðar um allan heim. Þetta hjálpar þér að velja villta fiskveiði sem styður heilbrigt haf, í dag og fyrir framtíðina.